
Innleiðing
Innleiðing á nýju kerfi eða uppfærsla á eldra kerfi.
Það er alltaf misjafnt hver þörf fyrirtækja er fyrir val á bókhaldskerfi. Sumir smærri aðilar vilja helst bara að bókarinn þeirra geri allt fyrir þá og noti sitt kerfi. Aðrir vilja að bókarinn geri allt en þeir geti sjálfir skrifað út reikninga til sinna viðskiptamanna. Enn aðrir vilja hafa sölukerfi sem er samþáttað bókhaldskerfinu, ýmsir nota innkaupakerfi, birgðakerfi, verkbókhald, crm kerfi, innheimtukerfi eða sérhæfð kerfi fyrir þeirra starfsemi. Hvað þarft þú? Getum skoðað það saman.
Það þarf því að velja sér gott kerfi í upphafi því að skipta um bókhaldskerfi getur verið kostnaðarsamt. Það getur líka verið dýrt að bíða með að velja kerfi og hafa allt í rassvasanum. En þegar við byrjum að nota bókhaldskerfi þá bjóða mörg 30 daga fría prufuáskrift til að koma þér á bragðið og nennir ekki að flytja þig í hentugra kerfi síðar. Þess vegna getur borgað sig að fá óháða ráðgjöf um val á kerfi í upphafi rekstur. Gott að gera sér grein fyrir hvert reksturinn á að stefna og hver þörf er á aðgöngum að kerfunum. En það getur líka verið hagkvæmt að byrja ó ódýru kerfi sem hentar meðan þú ert lítill en fara í stærra kerfi síðar. Sum kerfi bjóða uppá aðgang að bókhaldi fyrri ára frítt eða gegn vægu gjaldi.
Svo er misjafn hvernig eigendur bókhaldskerfa setja upp sýnar verðskrár og rukka þjónustur á misjafnan hátt þannig að ekki er auðvelt að sjá strax hver kostnaður af kerfunum verður í framtíðinni. En það er alveg sama við hvern þú talar að þeir telja alltaf sitt kerfi vera best fyrir þig og gleyma alltaf að segja þér frá hinum og þessum aukaþjónustum sem þú á endanum þarft að kaupa. Því er rétt að leita til óháðs aðila eins og Bókhaldið.is sem hefur reynslu af helstu kerfunum, þ.e. hefur reynslu og séð kostnaði við kerfin og getur hjálpað þér að velja hentuga lausn á verði sem er ekki of íþyngjandi.
Dæmi um kerfi sem ég nota, ekki endilega í uppáhaldsröð.



