Bokhaldid.is er vörumerki í eigu Lognið ehf, sem aftur er í eigu Þorsteins Bjarka Ólafssonar.
Lognið er í raun viðurnefni sem hefur fylgt eigandanum frá barnsaldri er ég bjó á Grundarfirði. Þegar ég ákvað að byrja sjálfstæðan rekstur var ekkert erfitt að finna nafn á fyrirtækið en reksturinn snérist þó um aðra starfsemi í upphafi.
Frá unglingsárum hef ég verið að fikta við bókhald, skattamál og fleira fyrir einstaklinga og hef alltaf haft mikinn áhuga á tölum og bókhaldi og ýmsu tengt tölvum og tölvuverkefnum. En eins og gegnur og gerist í litlu sjávarþorpi þá togar sjómennskan í unga menn svo það var tekið fram yfir bókhaldið.
Mörgum árum síðar kynnist ég konunni minni sem er viðskiptalögfræðingur með áherslu á reikningshald frá háskóla í Moldova. Hún hafði starfað í nokkur ár við bókhald og endurskoðun í Moldova, en þegar hún flytur til Íslands fer hún að læra bókhald á ensku í MK og síðar á Íslensku í NTV. Þar sem íslenskan var erfið í byrjun lá ég yfir þessu með henni og var að þýða fyrir hana ýmis orð og hugtök. Konunni minni gekk svo frábærlega í þessu enda með þekkingu á efninu á öðru tungumáli en ég sagði henni að ég yrði bara að taka þessi próf líka. Fór svo í NTV að læra og útskrifaðist með hæstu einkun sem gefin hefur verið fyrir nám í bókhaldi hjá NTV.