Framtíðin er í stafrænum kerfum sem einfalda okkur lífið. Reyndar á bókhaldarinn þinn að einfalda þér lífið, en þjónusta hans kostar peninga. Til að minnka kostnað og auka áræðanleika þá er stafrænt bókhald alger snild. Þá eru reikningar að berast til og frá bókhaldinu á rafrænan hátt gegnum skeytamiðlara sem minnkar möguleika á villum. Það er en fullt af fólki sem áttar sig ekki á muninum á stafrænu skjali og rafrænu skjali. Reikningur sem er sendur í PDF telst vera rafræn útgáfa af pappírsreikning, en stafrænn reikningur er sendur á stöðluðu formi gegnum skeytamiðlun sem á að tryggja að allar upplýsingar reiknings lesist rétt á milli kerfa.
Það eru til mörg kerfi í dag sem geta lesið PDF reikninga og aðra skönnuða reikninga í kerfin þannig að þeir bókist sjálfvirkt. þetta er ekki 100% öruggt kerfi og krefst yfirlesturs af hálfu bókara til að staðfesta t.d. upphæðir reiknings, og lánadrottinn viðkomandi reiknings.


Eitt svar við “Hvað er stafrænt bókhald”
Hi, this is a comment.
To get started with moderating, editing, and deleting comments, please visit the Comments screen in the dashboard.
Commenter avatars come from Gravatar.