Þjónustan

Við tökum að okkur alla bókhaldsþjónustu fyrir einstaklinga með rekstur, fyrirtæki, húsfélög og félagasamtök. Láttu okkur sjá um bókhaldið og gerðu frekar það sem þú ert bestur í.

Fjárhagsbókhald: Við sjáum um að færa bókhaldið og stemma af. Við notum dK hugbúnað að öllu jöfnu en getum líka tekið að okkur færslu í öðrum kerfum t.d. netbókhaldi.

VSK - uppgjör: Allt bókhald sem við sjáum um að færa er tilbúið til vsk – uppgjörs á 2ja mán fresti. Við gerum lögbundnar skilagreinar t.d. virðisaukaskattskýrslu, fjármagnstekjuskatts- og aðrar skattaskýrslur ásamt uppgjöri.

Launakeyrslur: Láttu okkur sjá um launakeyrsluna. Mörg fyrirtæki sjá sér hag í því að fara með launakeyrsluna út úr fyrirtækinu þar sem launamál eru algert trúnaðarmál innan fyrirtækja. Við sjáum síðan um skilagreinar til lífeyrissjóða auk staðgreiðslu og tryggingagjalds til RSK.

Ársreikningar: Við sjáum um gerð ársreikninga fyrir einkahlutafélög, einstaklinga með rekstur og félagasamtök. Ársreikningi ber að skila í lok hvers bókhaldsárs til viðkomandi skattstofu. Ef fyrirtækið er af þeirri stæðrargráðu að það þurfi löggildan endurskoðanda vegna skattalaga þá skilum við bókhaldinu afstemmdu til hans.

Skattframtöl: Ásamt ársreikningi getum við einnig séð um gerð skattframtala fyrir einkahlutafélög, einstaklinga með rekstur og félagasamtök. Hjá okkur starfa aðeins viðurkenndir bókarar.